Efla þarf umræðu um jafnréttismál

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra. mbl.is/Golli

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra opnaði í dag alþjóðlega ráðstefnu um jafnréttismál á norðurslóðum sem fram fer í Hofi á Akureyri næstu tvo daga. Auk utanríkisráðherra flutti Tarja Halonen, fyrrverandi forseti Finnlands, ræðu við opnunina.

Þá mun Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra ávarpa ráðstefnuna. Kemur þetta fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Í ávarpi sínu greindi Gunnar Bragi frá áherslum á jafnréttismál í utanríkisstefnu Íslands, m.a. í svæðisbundnu samstarfi á vettvangi Norðurskautsráðsins og Norðurlandaráðs og innan Sameinuðu þjóðanna. Sagði ráðherrann mikilvægt að efla umræður og hlut jafnréttismála í starfi Norðurskautsráðsins enda væri það mikilvægur liður í sjálfbærri mannvistar- og samfélagsþróun á norðurslóðum.

Alls taka um 140 manns þátt í ráðstefnunni og munu fulltrúar frá stjórnvöldum, fræðasamfélaginu, viðskiptalífinu, félagasamtökum og frumbyggjasamtökum fjalla um aðstæður kvenna og karla á norðurheimsskautssvæðinu. Verður m.a. aðgangur og yfirráð auðlinda, þátttaka kynjanna í ákvarðanatöku og stjórnmálum, byggðaþróun, öryggi og velferð rædd á fundinum.

Tilgangur ráðstefnunnar er að stuðla að víðtækri og markvissri umræðu um jafnréttismál samtímans á svæðinu og beina um leið athygli að þeim áskorunum sem íbúar og samfélög á norðurslóðum standa frammi fyrir, m.a. áhrifa af loftlags- og umhverfisbreytingum á norðurslóðum. Er það jafnframt von skipuleggjenda að með ráðstefnunni verði lagður grunnur að áframhaldandi samstarfi þeirra mörgu hagsmunaaðila sem rannsaka, kenna, miðla og stuðla að jafnrétti kynjanna á norðurslóðum.

Ráðstefnan er styrkt af íslenskum stjórnvöldum, utanríkisráðuneyti Svíþjóðar, Norrænu ráðherranefndinni, auk þess sem hún nýtur stuðnings Finnlands, Færeyja, Noregs, frumbyggjasamtaka Aleuteyja (AIA) og Norðurskautsráðsins.

Skipuleggjendur ráðstefnunnar eru utanríkisráðuneytið, Jafnréttisstofa, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Norðurslóðanet Íslands.

Hér má nálgast opnunarávarp utanríkisráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert