Konur í fyrsta sinn í meirihluta í kirkjuráði

Frá vinstri: Stefán Magnússon, sr. Elínborg Gísladóttir, Agnes M. Sigurðardóttir, …
Frá vinstri: Stefán Magnússon, sr. Elínborg Gísladóttir, Agnes M. Sigurðardóttir, Svana Helen Björnsdóttir og sr. Gísli Gunnarsson. mynd/Kirkjan

Nýtt kirkjuráð var kjörið á kirkjuþingi í dag. Í ráðinu sitja tveir fulltrúar vígðra og tveir fulltrúar leikmanna, kjörnir af þinginu, auk biskups Íslands sem er forseti kirkjuráðs. Í fyrsta sinn eiga fleiri konur en karlar sæti í kirkjuráði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni.

Í ráðinu sitja:

Svana Helen Björnsdóttir, fulltrúi leikmanna,

Stefán Magnússon, fulltrúi leikmanna,
sr. Elínborg Gísladóttir, fulltrúi vígðra,
sr. Gísli Gunnarsson, fulltrúi vígðra og
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, sem er forseti ráðsins.

Varamenn í kirkjuráði eru:

Einar Karl Haraldsson, fulltrúi leikmanna
Drífa Hjartardóttir, fulltrúi leikmanna
Gísli Jónasson, fulltrúi vígðra
Geir Waage, fulltrúi vígðra

Kirkjuráð er kjörið til fjögurra ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert