Löghlýðnir ökumenn á Nesinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot fjögurra ökumanna sem óku um Suðurströnd á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd, á móts við íþróttamiðstöðina.

Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór alls 101 ökutæki þessa akstursleið og óku því fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71 km/klst. 

Þá voru brot 23 ökumanna mynduð á Eiðsgranda í Reykjavík í gær, en fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í vesturátt, að Keilugranda. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 210 ökutæki þessa akstursleið og óku því allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 69

Á þriðjudag voru brot 48 ökumanna mynduð á Smárahvammsvegi í Kópavogi, en fylgst var með ökutækjum sem ekið var Smárahvammsveg í norðurátt, við Hæðarsmára. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru alls 168 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km/klst eða meira. Sá sem hraðast ók mældist á 77. 

Vöktun þessi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert