Skortir úrræði fyrir börn

Úrræði skortir fyrir börn með geðrænan og vímuefnavanda að mati …
Úrræði skortir fyrir börn með geðrænan og vímuefnavanda að mati Geðhjálpar. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Áþreifanlegur skortur er á heildarsýn og samfelldri, einstaklingsbundinni þjónustu við börn og ungmenni með geðrænan og vímuefnavanda og fjölskyldur þeirra á Íslandi að því er fram kemur í fréttatilkynningu Geðhjálpar vegna málþings Geðhjálpar og Olnbogabarna á Grand Hótel síðasta fimmtudag. Fréttatilkynningin var send til allra alþingismanna en þar kemur fram að of oft sé börnum vísað í úrræði fyrir fullorðna vegna skorts á sérhæfðum úrræðum fyrir börn.

„Barna- og unglingageðdeild Landspítalans-Háskólasjúkrahúss (BUGL) hefur þurft að vísa börnum og ungmennum á sérhæfða fíknigeðdeild fyrir fullorðna á Landspítalanum af því engin sérhæfð deild af þessu tagi er til fyrir börn á Íslandi. BUGL hefur hvorki yfir að ráða sértækum greiningar- né meðferðarúrræðum vegna vímuefnaneyslu barna og ungmenna. Dæmi eru um að mjög ung börn hefðu notið þjónustu á Vogi og gist í Konukoti við hlið fullorðinna fíkla,“ segir í fréttatilkynningunni.

Þá er sagt brýnt að koma á fót sérhæfðri vímuefnameðferð fyrir börn og ungmenni með geðrænan og vímuefnavanda allt upp í 25 ára aldur. Með sama hætti er sagt að þurfi að hleypa af stokkunum langtímaúrræðum fyrir þennan hóp með mikilli samræmdri og samfélldri þjónustu ríkis og sveitarfélaga.

Á ráðstefnunni var lagt til að komið yrði á fót gistiskýli til að hýsa ungt fólk með tvíþættan vanda, sem vildi eða gætu ekki nýtt sér hefðbundin meðferðarúræði, m.a. til að tryggja að óvandaðir einstaklingar nýttu sér ekki neyð þess. Bent var á að skýra þyrfti viðbrögð lögreglu gagnvart því að slíkir einstaklingar skytu skjólshúsi yfir ungt fólk og misnotuðu í skiptum fyrir eiturlyf. Fleiri en einn frummælandi ítrekaði nauðsyn þess að bráðageðdeild væri opin allan sólarhringinn, m.a. með tilliti til þess að algengast væri að fólk skaðaði sig um miðja nótt.

„Mýmörg dæmi eru um skelfilegar afleiðingar tvíþætts vanda meðal ungs fólks, m.a. sjálfsvíg, dauðsföll vegna vímuefnanotkunar og ýmis konar óæskilega hegðun. Fangelsismálastofnun áætlar að 50-70% fanga stríði við vímuefnavanda og stór hluti þess hóps eigi við geðrænan vanda að etja. Fram kom að stofnunin hefði takmörkuðu úrræði til að þjónusta þennan hóp í því skyni að koma í veg fyrir frekari neikvæðar afleiðingar,“ segir í fréttatilkynningunni.

Geðhjálp mun fylgja niðurstöðum málþingsins eftir með því að kalla aftur til opins fundar með fulltrúum, LSH, Barnaverndarstofu, Reykjavíkurborgar og Fangelsismálastofnunar á vormánuðum en hægt er að horfa á fyrirlestra af málþinginu hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert