Lögreglan á Sauðárkróki hefur fylgst með ástandi loftgæða í bænum og víðsvegar um Skagafjörð og hefur ástandið lagast verulega eftir því sem liðið hefur á morguninn. Mæligldin flokkast nú sem góð skv. töflu sem sjá má á vef Umhverfisstofnunar.
„Það er því ekki lengur um að ræða sama ástand og var í morgun þegar mæligildin voru í flokknum óholl skv. sömu töflu,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.