Á 77 km hraða í 30-götu

mbl.is/júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu svipti í dag tvær konur ökuréttindum til bráðabirgða en þær voru staðnar að hraðakstri í Arnarbakka í Reykjavík til móts við Dvergabakka. Önnur var á 77 km hraða og hin á 64. 

Hámarkshraðinn á þessum kafla er 30. Fleiri óku of hratt á þessum kafla og hlaut einn karlmaður sekt eftir að hafa ekið á 58 km hraða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert