Spá hríðarveðri fyrir norðan

mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Skil fara í dag norður yfir landið með samfelldri úrkomu og norðaustanstormi. Gera má ráð fyrir hríðarveðri og skafrenningi, einkum á Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði, en almennt er að hlána og vindur gengur smámsaman niður um sunnan- og austanvert landið, samkvæmt upplýsingum veðurfræðings Vegagerðarinnar.

Á Suðurlandi eru vegir greiðfærir en óveður er við Kjalarnes og víða um sunnanvert landið.

Vegir eru mikið auðir við Faxaflóa en krapi er á Holtavörðuheiði, hálkublettir á Bröttubrekku og flughált á Laxárdalsheiði. Eins er óveður í Miðdölum sem og við Hafursfell á Snæfellsnesi.

Hálka, krapi og jafnvel skafrenningur er á öllum helstu fjallvegum á Vestfjörðum. Hálka og óveður er á Hálfdán og hálkublettir og óveður á Klettshálsi. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og ekkert gert í dag sökum veðurs. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Dynjandisheiði. Þæfingsfærð er á leiðinni norður í Árneshrepp á Ströndum. Óveður er í Reykhólasveit og í Ísafjarðardjúpi.

Á Norðurlandi er víðast hvar hálka, skafrenningur og éljagangur á vegum. Óveður er í Blönduhlíð og hálkublettir og óveður í Norðurárdal. Flughálka er á Þverárfjalli. Hálka og óveður er á Hófaskarði og Mývatns- og Möðrudalsöræfum.

Það er víða hálka eða snjóþekja á Austurlandi. Krapi og óveður er á Fjarðarheiði og ófært á Vatnsskarði eystra vegna veðurs. Snjóþekja og skafrenningur er á Oddsskarði en autt er frá Eskifirði með suðausturströndinni en óveður víða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert