Tveir unnu 76 milljónir

Tveir heppnir miðaeigendur í Þýskalandi voru með aðaltölur réttar og eina stjörnutölu í EuroJackpot í dag. Þeir fengu þar með rúmar 76 milljón krónur hvor í sinn hlut en enginn var með allar tölur réttar.

Þrír miðaeigendur voru svo með allar aðaltölur réttar en enga stjörnutölu og fengu 18 milljónir hver en þeir miðar voru seldir í Danmörku, Finnlandi og Þýskalandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert