„Ég er ánægður með góða umfjöllun um sýninguna en ég er ekki vanur stjörnutali og ég reyni að láta það hafa lítil áhrif á mig. Ég er bara hluti af þessari sýningu og fyrir mér er mikilvægast að sýningin í heild fái góðar viðtökur.“
Þetta segir Oddur Arnþór Jónsson söngvari sem hefur hlotið gríðarlegt lof fyrir frammistöðu sína í Don Carlo eftir Verdi og haft hefur verið á orði að stjarna sé fædd.
Oddur Arnþór ræðir í viðtali við sunnudagsblað Morgunblaðsins um sýninguna, ferilinn, verkefnin framundan og fleira. Hann segist vera mjög sjálfsgagnrýninn.