Könnuðust hvorugt við að hafa ekið

Brynjar Gauti

Lögreglumenn á eftirlitsferð á öðrum tímanum nótt veittu athygli bifreið sem var kyrrstæð þversum á Miklubraut við Grensásveg. 

Undir stýri var kona um tvítugt og fyrir utan bifreiðina var karlmaður tæplega þrítugur.  Konan var ölvuð og karlinn var undir áhrifum fíkniefna. Hvorugt þeirra kannaðist við að hafa ekið bílnum og komið honum í þessa stöðu. 

Bæði voru þau handtekin og færð á lögreglustöð. Þau verða yfirheyrð þegar ástand þeirra leyfir.  Karlinn var eftirlýstur vegna afplánunar vararefsingar. Hann mun hefja þá afplánun í framhaldinu.

Tveir ökumenn voru teknir úr umferð í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna ölvunaraksturs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert