Breytt deiliskipulag Hlíðarenda samþykkt

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í morgun sínum með fjórum atkvæðum gegn þremur tillögu varðandi breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda í Vatnsmýri. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og flugvallarvina greiddu atkvæði gegn tillögunni og segja þetta muni hafa áhrif á svokallaða neyðarbraut.

Að lokinni auglýsingu var lögð fram að nýju á fundinum í morgun umsókn Valsmanna hf. og Knattspyrnufélagsins Valur frá 4. febrúar 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda í Vatnsmýri. Í breytingunni felst fjölgun á íbúðum, aukningu á atvinnuhúsnæði o.fl.

Tillagan var samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa frá 3. nóvember 2014 með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, þeirra Hjálmars Sveinssonar og Kristínar Soffíu Jónsdóttur, Magneu Guðmundsdóttur, fulltrúa Bjartrar framtíðar og Gísla Garðarssonar, fulltrúa VG.

Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, fulltrúi Framsóknar og flugvallarvinna, Júlíus Vífill Ingvarsson og Áslaug María Friðriksdóttir, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, greiddu gegn tillögunni.

Málinu hefur verið vísað til borgarráðs, að því er fram kemur í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs.

„Böðlast áfram með breytingar“

Guðfinna lét bóka, að deiliskipulag Reykjavíkurflugvallar sem var samþykkt í borgarstjórn 1. apríl 2014 og tók gildi 6. júní 2014 sé verulega áfátt, bæði varðandi málsmeðferð og efni, og eigi þeir ágallar að leiða til ógildingar deiliskipulagsins en umrætt deiliskipulag Reykjavíkurflugvallar hafi verið kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. 

„Áhættumat vegna fyrirhugaðrar lokunar flugbrautar 06-24 [svokallaðrar neyðarbrautar] liggur ekki fyrir. Þá hefur nothæfisstuðull Reykjavíkurflugvallar með og án flugbrautar 06-24 ekki verið endurreiknaður í samræmi við reglugerð 464/2007 um flugvelli. Þá liggur ekki fyrir afstaða Samgöngustofu til lokunarinnar. Þegar þessi atriði liggja fyrir væri fyrst hægt að taka upplýsta ákvörðun um hvaða áhrif slík lokun hefði á umhverfi innanlandsflugs og sjúkraflugs. Er því órökrétt og óábyrgt að gera ráð fyrir byggingum sem teppa aðflug að flugbrautinni og loka henni áður en slíkar upplýsingar liggja fyrir. Í stað faglegra vinnubragða er böðlast áfram með breytingar á deiliskipulagi sem ganga út frá því að flugbrautin sé ekki lengur til. Þá er nefnd sem skipuð var um framtíðarstaðsetningu innanlandsflugs enn að störfum og hefur formaður nefndarinnar óskað eftir svigrúmi til að klára þá vinnu,“ segir í bókun Framsóknar og flugvallarvina.

Ótímabært að skipuleggja svæðið með óafturkræfum hætti

Júlíus Vífill lét bóka, að bíða eigi eftir að Rögnunefndin svokallaða, sem var sett á laggirnar til að finna framtíðarstaðsetningu innanlandsflugvallar, eigi að fá að ljúka sínum störfum. Hún hefur nýlega greint frá fimm mögulegum flugvallarstæðum sem hún hefur nú til skoðunar og er Vatnsmýrin eitt af þeim.

„Til að virða þá tímabundnu þverpólitísku sátt varðandi nefndarvinnuna, framtíðarstaðsetningu flugvallararins og öryggi hans greiða fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og skipulagsráði gegn tillögunni, þar sem ekki er tímabært að skipuleggja svæði með óafturkræfum hætti þegar óvissa ríkir að þessu leyti,“ segir m.a. í bókun Júlíusar.

Snýst um breytingu á þegar samþykktu deiliskipulagi

Fulltrúi Samfylkingarinnar  Hjálmar Sveinsson, fulltrúi Bjartrar framtíðar Magnea Guðmundsdóttir, fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Gísli Garðarsson og fulltrúi Pírata Sigurborg Ó. Haraldsdóttir bókuðu eftirfarandi: „Tillagan snýst um breytingu á þegar samþykktu deiliskipulagi Hlíðarendasvæðis, þar sem gert er ráð fyrir að  flugbraut 06-24 víki. Breytingin felur eingöngu í sér fjölgun íbúða og breytta tilhögun  á atvinnuhúsnæði. Hún fellur vel að meginmarkmiðum nýs aðalskipulags að þétta íbúðarbyggð í vesturhluta borgarinnar og stytta vegalengdir í Reykjavík eins og kostur er.  Umhverfis og skipulagsráð hefur nýtt tímann til að fara í saumana á helstu umhverfisþáttum skipulagsins.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert