Strætó skilar bíl framkvæmdastjóra

Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs.
Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Stjórn telur fjárfestinguna ekki samræmast megináherslum sem eigendur hafa sammælst um í eigendastefnu Strætó bs.,“ segir í fundargerð stjórnar Strætó frá því í byrjun mánaðarins en þar er fjallað um kaup byggðasamlagsins á bifreið fyrir Reyni Jónsson, framkvæmdastjóra Strætó.

Í fundargerðinni kemur fram að Reynir hafi ekki borið nýleg kaup Strætó á Mercedes Benz-jeppa undir stjórn eða stjórnarformann. Bifreiðin, sem kostar á annan tug milljóna króna, var fyrir Reyni sjálfan.

Niðurstaða stjórnarinnar var einföld: „Rætt hefur verið við framkvæmdastjóra og ákveðið hefur verið að skila bílnum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert