Útreikningar liggja fyrir

Niðurstöður leiðréttingarinnar liggja nú fyrir hjá flestum.
Niðurstöður leiðréttingarinnar liggja nú fyrir hjá flestum. mbl.is/Golli

Búið er að opna fyrir niðurstöður skuldaleiðréttingarinnar á vefsíðunum rsk.is og leidretting.is. Þar geta þeir sem sóttu um höfuðstólsleiðréttingu verðtryggðra fasteignalána nú nálgast upplýsingar um stöðu sinna mála.

Eftirfarandi tilkynning birtist á vef Ríkisskattstjóra á miðnætti:

Ríkisskattstjóri hefur nú lokið afgreiðslu á meginhluta umsókna á höfuðstólsleiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána og birt niðurstöður á vefsíðunni leidretting.is.

Öllum umsækjendum hefur verið sendur tölvupóstur þar sem gerð hefur verið grein fyrir því hvort að útreikningi sé lokið eða að umsækjandi sé í þeim hópi sem fær birtingu síðar.

Alls eru nú birtar niðurstöður fyrir 94.604 umsækjendur af ríflega 105 þúsund, eða nálægt 90%.

Hjá öðrum umsækjendum liggja niðurstöður ekki fyrir enn sem komið er. Ástæður þessa geta verið nokkrar, meðal annars flóknar breytingar á stöðu heimila umsækjenda, úrvinnslu á lánaupplýsingum er ekki lokið eða annað sem þarfnast nánari skoðunar.

Vænta má að niðurstaða vegna þeirra umsókna liggi fyrir fljótlega og mun ríkisskattstjóri tilkynna hlutaðeigandi með tölvupósti þar um.

Ríkisskattstjóri

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert