Byssurnar enn í biðstöðu

Alls bárust 250 hriðskotabyssur til landsins frá Noregi í febrúar …
Alls bárust 250 hriðskotabyssur til landsins frá Noregi í febrúar sl. 150 þeirra áttu að fara til lögreglunnar. mbl.is/Rósa Braga

Vopn sem bárust Landhelgisgæslunni frá Norðmönnum í febrúar sl. liggja enn innsigluð í vopnageymslu Gæslunnar á Keflavíkurflugvelli. Tollstjóri innsiglaði vopnin í lok október á þeirri forsendu að ekki væri búið að greiða af þeim tilskilin gjöld og tolla.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er staða málsins óbreytt og að sögn upplýsingafulltrúa LHG er erfitt að spá fyrir um það hvenær málið verður endanlega til lykta leitt. Viðræður hafa átt sér stað við norska embættismenn en niðurstaða liggur ekki fyrir.

Um er að ræða 250 hríðskotabyssur af gerðinni MP5 sem komu til landsins með norskri herflutningavél í febrúar á þessu ári. Alls voru 150 byssur ætlaðar ríkislögreglustjóra, samkvæmt beiðni hans til norskra yfirvalda. 

Deilt hefur verið um hvort um gjöf hafi verið að ræða eða viðskipti. Landhelgisgæslan heldur því fyrrnefnda fram en norsk yfirvöld segja að það standi til að senda íslenskum yfirvöldum reikning. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert