Bíll valt eftir að bílstjóri blindaðist

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Bílvelta varð á Moldhaugnahálsi á hringveginum, rétt norðan við Akureyri um klukkan hálfsjö í kvöld. Ökumaðurinn, sem var franskur ferðamaður, blindaðist af bifreið sem kom á móti, ók út af veginum og bifreiðin valt. 

Lögreglan og sjúkrabíll komu á vettvang. Ökumaðurinn reyndist ómeiddur en farþegi bílsins handleggsbrotnaði og var farið með þau á sjúkrahús. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert