Eldgosið sést greinilega

Eldgosið í Holuhrauni er í fullum gangi.
Eldgosið í Holuhrauni er í fullum gangi. mbl.is/RAX

Vel sést til eldgossins í Holuhrauni á vefmyndavél Mílu núna en langt er síðan jafngott skyggni hefur verið á þessum slóðum. 

Í dag má búast við gasmengun norður og austur af eldstöðinni í Holuhrauni, frá Skjálfandaflóa austur á Djúpavog.

Á morgun er útlit fyrir mengun til norðausturs af eldgosinu, frá Tjörnesi austur í Mjóafjörð.
Vindur er hægur báða dagana og eykur það líkur á hærri styrk gasmengunar.

Enn sem komið er þá er ekki mælanleg mengun á landinu en hægt er að fylgjast með mengunarmælum hér.

Vefmyndavél Mílu

Mengunarspá dagsins
Mengunarspá dagsins Af vef Veðurstofu Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert