Grunur um að greitt hafi verið fyrir árás

Kveikt var í bíl Eyþórs.
Kveikt var í bíl Eyþórs. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Maður er grunaður um að hafa greitt öðrum fyrir að ráðast á Eyþór Þorbergsson, fulltrúa hjá Sýslumanninum á Akureyri, á heimili hans um miðja nótt í síðustu viku.

Morgunblaðið veit þetta fyrir víst þótt enginn hafi viljað staðfesta það opinberlega. Hinn grunaði hefur komist í kast við lögin.

Sá sem réðst á Eyþór er á fertugsaldri og hefur margoft komið við sögu lögreglunnar allar götur síðan hann var barn. Eyþóri var brugðið en í samtali í Morgunblaðinu í dag segist hann ekki óttasleginn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert