Spáir lækkun flugfargjalda

Útlit er fyrir að flugfargjöld lækki vegna mikillar lækkunar á …
Útlit er fyrir að flugfargjöld lækki vegna mikillar lækkunar á flugeldsneyti. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Mikil lækkun á verði þotueldsneytis mun á næstunni að óbreyttu leiða til lægri flugfargjalda. Þetta er mat Björgólfs Jóhannssonar, forstjóra Icelandair.

Tilefnið er að verð á þotueldsneyti hefur tekið snarpa dýfu síðustu mánuði. Tonnið kostaði yfir þúsund dali 20. júní en kostaði 778 dali sl. föstudag. Það er yfir 20% lækkun.

Á sama tímabili hefur tunnan af hráolíu í Bandaríkjunum lækkað úr ríflega 107 dölum niður í tæplega 76 dali, eða um 30% á fáum mánuðum. Lækki verð á flugmiðum hefur það áhrif til lægri verðbólgu, að því er fram kemur í umfjöllun um lækkun á flugeldsneyti í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert