Starfi skólanna stefnt í hættu

Frá samstöðufundinum í Hörpu í dag.
Frá samstöðufundinum í Hörpu í dag. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Sú mikla gróska sem einkennt hefur tónlistarlíf hér á landi undanfarna áratugi er ekki sjálfsprottin heldur á hún rætur í því metnaðarfulla starfi sem fram fer daglega í tónlistarskólum landsins.“

Þetta kemur fram í ályktun Kennarasambands Íslands sem send var út eftir samstöðufund sambandsins með tónlistarskólakennurum sem fram fór í Hörpu fyrr í dag.

Í ályktuninni kemur einnig fram að starfi tónlistarskóla sé nú stefnt í hættu af kjörnum fulltrúum sem á annan áratug hafa setið aðgerðarlausir á meðan kjör tónlistarkennara hafa smám saman dregist aftur úr kjörum sambærilegra hópa. 

Að mati sambandsins er krafa tónlistarskólakennara, að störf þeirra verði metin til jafns á við aðra kennara og að laun þeirra verði leiðrétt, sanngjörn.

Ályktunina má lesa í heild sinni hér að neðan.

Sú mikla gróska sem einkennt hefur tónlistarlíf hér á landi undanfarna áratugi er ekki sjálfsprottin heldur á hún rætur í því metnaðarfulla starfi sem fram fer daglega í tónlistarskólum landsins. Starfi tónlistarskóla er nú stefnt í hættu af kjörnum fulltrúum sem á annan áratug hafa setið aðgerðarlausir á meðan kjör tónlistarkennara hafa smám saman dregist aftur úr kjörum sambærilegra hópa.

Nú fara tónlistarkennarar fram með þá sanngjörnu kröfu að störf þeirra verði metin til jafns á við aðra kennara og að laun þeirra verði leiðrétt. Þeirri kröfu hefur fram að þessu verið svarað með skeytingarleysi og hrópandi þögn þrátt fyrir að tónlistarkennarar hafi nú verið í verkfalli í fjórar vikur og nám tónlistarnemenda beðið mikinn skaða.

Sveitarstjórnarmenn stæra sig á tyllidögum af blómlegu menningarlífi. En með hverjum deginum sem líður án þess að samið sé við tónlistarkennara sést að orð þeirra eru innantóm. Mál er að linni. Við krefjumst þess að samið verið strax við tónlistarkennara svo að þeir geti snúið aftur til sinna mikilvægu starfa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert