Kokkalandsliðið til Lúxemborgar

Kokkalandsliðið á æfingu.
Kokkalandsliðið á æfingu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Kokkalandsliðið heldur af stað til Lúxemborgar á föstudagsmorgun 21. nóvember til að keppa í Heimsmeistarakeppninni í matreiðslu. Kokkalandsliðið hefur æft síðustu 18 mánuði fyrir keppnina.

Búið er að senda hátt í 4 tonn af búnaði til Lúxemborgar en liðið þarf að setja upp fullbúið eldhús á keppnisstað. Þá er ótalið hráefnið sem flytja þarf á staðinn en Kokkalandsliðið leggur áhersla á að nota sem mest af hágæða íslensku hráefni í matargerðina.

Heimsmeistarakeppnin, Culinary World Cup, er haldin á fjögurra ára fresti. Þar mætast 1.000 af færustu kokkum heimsins sem keppa sín á milli um gull, silfur og brons verðlaun. Keppnin hefst 22. nóvember og í 5 daga verða um 105 lið frá 5 heimsálfum á keppnisstaðnum.

Kokkalandsliðið keppir í tveimur greinum, annars vegar er keppt í köldu borði eða Culinary Art Table og hins vegar er keppt í heitum mat eða Hot Kitchen. Í keppninni um heitu réttina er útbúinn þriggja rétta matseðill með forrétt, aðalrétt og eftirrétt sem eldað er frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti.

Í Culinary Art Table eru sýndir yfir 30 réttir sem tekur rúmlega tvo sólarhringa að útbúa. 55 dómarar alls staðar að úr heiminum með tilheyrandi réttindi dæma í keppnunum þar sem meðal annars er tekið mið af bragði, útliti, samsetningu, hráefnisvali og fagmennsku við undirbúning og matargerð.

Í Kokkalandsliðinu eru: Hafliði Halldórsson faglegur framkvæmdastjóri liðsins, Þráinn Freyr Vigfússon fyrirliði Lava Bláa lónið, Viktor Örn Andrésson liðsstjóri Lava Bláa lónið, Fannar Vernharðsson VOX, Bjarni Siguróli Jakobsson Slippbarinn, Ylfa Helgadóttir Kopar, Hafsteinn Ólafsson Apótekið, Axel Clausen Fiskmarkaðurinn, Garðar Kári Garðarsson Strikið, Daníel Cochran Kolabrautin, Ari Þór Gunnarsson Fiskfélagið, Hrafnkell Sigríðarson Bunk Bar og María Shramko sykurskreytingarmeistari.

Meðan á keppninni stendur verður hægt að fylgjast með Kokkalandsliðinu á vefsíðu liðsins www.kokkalandslidid.is og samfélagsmiðlunum Facebook, Instagram @icelandicculinaryteam og Twitter @kokkalandslidid.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert