Siggi hakkari fyrir dóm í desember

Siggi hakkari í héraðsdómi Reykjaness.
Siggi hakkari í héraðsdómi Reykjaness. mbl.is/Árni Sæberg

Aðalmeðferð í  máli lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á hendur Sigurðar Inga Þórðarsonar, eða Sigga hakkara hefst 2. desember. Þetta staðfestir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi Sigurðar í samtali við mbl.is.

„Það verða nokkrir daga teknir í þetta. Við tókum frá 5 eða 6 daga í þetta. En það er ekkert víst að við notum alla dagana en þeir verða teknir frá til öryggis,“ segir Vilhjálmur.

Málið gegn Sig­urði var þing­fest í júní sl. vegna fjár­svika, þjófnaða, eign­ar­spjalla og skjalafals. Stærsti ákæru­liður­inn varðar 6,7 millj­óna króna fjár­svik en í ákæru seg­ir að Sig­urður hafi blekkt eig­anda vef­versl­un­ar til að milli­færa fjár­mun­ina inn á reikn­ing sinn í stað þess að leggja hann inn á reikn­ing Wiki­leaks. Um var að ræða ágóða af sölu varn­ings til stuðnings upp­ljóstr­arasíðunni.

Að sögn Vilhjálms munu um fimmtíu vitni gefa skýrslu fyrir dómi, þar á meðal Julian Assagne, stofnandi Wikileaks.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert