Bíll valt í Öxnadal á tíunda tímanum í kvöld. Í bílnum voru fjórir farþegar, hjón með tvö börn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri var farið var með fólkið til aðhlynningar á sjúkrahús en ekki er talið að það sé mikið slasað.
Bíllinn er enn á staðnum og töluvert skemmdur að sögn lögreglu.