Gripin við hnupl í verslun

mbl.is/Þorkell

Kona í annarlegu ástandi var handtekin um áttaleytið í gærkvöldi grunuð um hnupl í verslun í austurhluta Reykjavíkur. Konan er grunuð um fleiri slík brot og gistir fangageymslu vegna rannsóknar á málum hennar.

Á fimmta tímanum í nótt var tilkynnt innbrot í heimahús í austurbænum en húsráðandi vaknaði við umganginn. 

Þjófarnir voru hins vegar fljótir að forða sér þegar þeir heyrðu í húsráðanda og ekki liggur fyrir á þessari stundu hvað þeir náðu að hafa á brott með sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert