Boðað til mótmæla á Ísafirði

Lögreglustöðin á Ísafirði.
Lögreglustöðin á Ísafirði. mynd/bb.is

Boðað hefur verið til mótmæla fyrir utan lögreglustöðina á Ísafirði nk. föstudag. Er mótmælunum sérstaklega beint að aðgerðum lögreglu fyrr í vikunni sem leiddu til þess að maður handleggsbrotnaði.

Boðað var til mótmælanna á Facebook í gærkvöldi. Á síðu viðburðarins kemur fram að maðurinn hafi aðeins fengið gifs til bráðabirgða en engin verkjalyf. Hafi hann síðan þurft að sitja í fangaklefa í fimm klukkustundir áður en honum var sleppt. Hann hafi þurft að koma sér sjálfur til Reykjavíkur í aðgerð. Í aðgerðinni þurfti að setja plötu og sex skrúfur í handlegginn til þess að ná brotinu saman, og tvær skrúfur í fingurna á manninum.

Sagt var fyrst frá málinu á mbl.is á fimmtudaginn. Kom þar fram að lögreglan á Ísafirði hefði orðið að grípa til vopna vegna manns sem var vopnaður hnífi í húsi í bænum. Vitnað var í heimildarmann mbl.is á Ísafirði sem sagði að lögreglumenn hefðu gert til­raun til þess að yf­ir­buga mann­inn með kylf­um og mace-brús­um en orðið frá að hverfa. Þeir náðu þá í byssu í lög­reglu­bíl­inn í sam­ráði við lög­reglu­stöðina. Mann­in­um var síðan til­kynnt með gjallarhorni að lög­regl­an hefði vopn­ast og kom hann í kjöl­farið út úr hús­inu óvopnaður og var hand­tek­inn.

Lögreglan á Ísafirði tjáði sig um málið síðar sama dag. 

Kom fram í yfirlýsingu að lögregla hefði verið kölluð í heimahús þar sem maður var í sjálfsvígshugleiðingum. Á maðurinn að hafa hótað lög­reglu­mönn­um með hnífi og vegna ógn­andi til­b­urða hans neydd­ist lög­regla til að vopn­bú­ast. 

Hótaði lögreglumönnum með hnífi

Þurftu að grípa til vopna

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert