Eru þúsundfætlur jólagjöfin í ár?

Sé einhver að leita að jólagjöf handa þeim sem á allt væri upplagt að skella sér á huggulega þúsundfætlu eða jafnvel kakkalakka. Nú er hægt að virða fyrir sér og kaupa mikið af framandi skordýrum í gæludýraversluninni Fiskó í Garðabæ sem finnast ekki í íslenskri náttúru.

Þá eru nokkrir sporðdrekar til sýnis en þeir eru ekki til sölu og fara bráðlega í Húsdýragarðinn þar sem þeir munu eyða ævinni. mbl.is fékk að kíkja á þessi furðulegu kvikindi en mörg þeirra eiga sín náttúrulegu heimkynni í frumskóginum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert