„Ég var þrjá daga að glíma við selinn,“ sagði Jón Guðbjörn Guðjónsson, bóndi og veðurathugunarmaður í Litlu-Ávík í Árneshreppi, en hann náði í gær góðum myndum af sel sem hafði verið að sniglast í fjörunni við bæinn.
Loksins þegar Jón komst í tæri við selinn var hann hinn spakasti og vildi ekki láta hrekja sig af skerinu.
Raunar voru selirnir tveir og sést annar kíkja upp úr sjónum í lok myndbandsins.