Birtir til en hætta á ísingu

Það mun birta til víða á landinu í dag og um leið lægir mikið. Hætt við lúmskri
ísingu á blautum vegum jafnvel þótt lofthiti verði ofan við frostmark. Fyrst suðvestan og
vestanlands með kvöldinu og síðar einnig á Vestfjörðum og Norðurlandi, samkvæmt ábendingum veðurfræðings Vegagerðarinnar.

Vegir eru að mestu auðir á landinu en þó eru hálkublettir á Hálfdán og á nokkrum leiðum á Norðaustur- og Austurlandi.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert