Fórnarlambinu haldið sofandi

Maðurinn hlaut alvarlega áverka.
Maðurinn hlaut alvarlega áverka. mbl.is/Lára Halla

Manninum sem ráðist var á í gærkvöldi er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. Hann er alvarlega slasaður að sögn læknis og gekkst hann undir aðgerð í gærkvöldi. 

Maðurinn var fluttur með alvarlega áverka á spítalann en talið er að fjórir menn hafi ráðist á hann í heimahúsi á Hverfisgötu.

Mennirnir fjórir, sem eru allir af erlendu bergi brotnir, eru nú í haldi lögreglu. Þeir verða yfirheyrðir í dag. 

Fjórir í haldi vegna hnífstungu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert