„Hegðun hans var óboðleg“

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum telur aðgerðir sinna manna hafa verið réttmætar miðað við aðstæður en harmar meiðsli manns sem handtekinn var aðfaranótt 17. nóvember síðastliðinn. Þá vonar lögreglustjórinn að hann nái sér að fullu.

Sagt var fyrst frá málinu á mbl.is á fimmtudaginn. Kom þar fram að lögreglan á Ísafirði hefði orðið að grípa til vopna vegna manns sem var vopnaður hnífi í húsi í bænum. Vitnað var í heimildarmann mbl.is á Ísafirði sem sagði að lögreglumenn hefðu gert til­raun til þess að yf­ir­buga mann­inn með kylf­um og mace-brús­um en orðið frá að hverfa. Þeir náðu þá í byssu í lög­reglu­bíl­inn í sam­ráði við lög­reglu­stöðina. Mann­in­um var síðan til­kynnt með gjallarhorni að lög­regl­an hefði vopn­ast og kom hann í kjöl­farið út úr hús­inu óvopnaður og var hand­tek­inn.

Lögreglan sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem farið er yfir helstu atriði málsins:

  • Lögreglan fór að umræddu húsi til að koma manninum til hjálpar.
  • Maðurinn var vopnaður hnífi og bæði hótaði og reyndi ítrekað að veita lögreglumönnum áverka með hnífnum.
  • Lögreglumenn reyndu með fortölum að fá manninn til að leggja frá sér vopnið. Þess í stað veittist hann að lögreglumönnum með hnífinn á lofti. Þá var kylfu og mace-varnarúða beitt. Þegar ljóst var að það hafði ekki tilætlaðan árangur var ákveðið að vopnast byssum. Að vopnast merkir að lögreglumenn setja á sig viðeigandi varnarbúnað og skammbyssur í slíður. Ætla má að þegar varnarúðanum og kylfu var beitt hafi maðurinn handleggs- og fingurbrotnað.
  •  Þegar maðurinn gerði sér grein fyrir alvarleika málsins kom hann út úr húsinu og gaf sig á vald lögreglu.
  • Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð og vistaður í fangaklefa en læknir strax kallaður til. Læknirinn skoðaði manninn og ákvað næstu skref varðandi frekari læknismeðferð.
  • Í aðgerð lögreglu voru byssur ekki teknar úr slíðrum.

Þá segir lögreglan að ekki standi til að reka málið í fjölmiðlum en „lögreglustjórinn á Vestfjörðum telur aðgerðir hafa verið réttmætar miðað við aðstæður en harmar meiðsli mannsins og vonar að hann nái sér að fullu. Hegðun hans var hins vegar óboðleg, stórháskaleg og hættuleg lífi og heilsu lögreglumanna á vettvangi og eins hans eigin lífi. Lögreglan biður fólk að sýna málinu skilning og velta fyrir sér alvarleika þess. Hugleiða varnir lögreglumanna við að verjast árás hnífamanns eða allra þeirra sem þurfa að standa í þeim sporum. “

Rannsókn málsins er á lokastigi og verður það síðan sent ríkissaksóknara til meðferðar.

Fréttir mbl.is um málið:

Boðað til mótmæla á Ísafirði

Hótaði lögreglumönnum með hnífi

Þurftu að grípa til vopna

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert