Kokkalandsliðið vann gullverðlaun

Landsliðið vinnur að heita borðinu sem það vann til gullverðlauna …
Landsliðið vinnur að heita borðinu sem það vann til gullverðlauna fyrir.

Kokkalandsliðið vann gullverðlaun í heimsmeistarakeppninni í Lúxemborg eftir frammistöðu sína í keppninni í gærkvöldi. Kokkalandsliðið hafði sex klukkustundir til að matreiða þriggja rétta máltíð fyrir dómara og 110 gesti.

Haft er eftir Hafliða Halldórssyni, framkvæmdastjóra liðsins, í fréttatilkynningu að mikil ánægja sé með árangurinn. „Liðið stóð sig vel í keppninni í gær og gullverðlaunin staðfesta að við erum með mjög sterkt og vel æft lið sem vinnur vel saman. Við höfum lagt áherslu á að nota íslenskt hágæðahráefni, meðal annars lambakjötið okkar, þorsk, humar, skyr og íslenskt grænmeti. Þetta hefur fallið vel í kramið hjá dómurunum. Í dómgæslunni er ekki bara bragð, útlit, samsetning og hráefnisval metið heldur er einnig tekið mið af fagmennsku við undirbúning og hvernig liðið vinnur saman að matargerðinni í keppniseldhúsinu. Í þeim þáttum stóð liðið sig einnig vel.“

Nú þegar keppninni í heitu réttunum er lokið tekur við undirbúningur fyrir keppnina í kalda borðinu. Kokkalandsliðið hefur tvo sólarhringa til að útbúa um 30 rétti sem verða til sýnis á keppnisstað á miðvikudaginn. Það verður unnið dag og nótt við að gera réttina klára fyrir sýningarborðið sem þarf að vera tilbúið uppsett í keppnishöllinni kl. 8 á miðvikudagsmorgun.

Matseðillinn sem fékk gullið:

Forréttur

Hægeldaður íslenskur þorskur og pönnusteiktur humar, framreiddur með epla- og jarðskokkasalati, agúrku, kínóa, skelfisksósu og dill-sinneps-vinaigrette.

Aðalréttur

Grilluð íslensk lambamjöðm með vel elduðum lambaskanka og -tungu. Framreidd með seljurót, kartöflu- og sveppakrókettu, gljáðum gulrótum og perlulauk, rósakáli, baunum ásamt blóðbergs-lambasósu með sveppum.

Eftirréttur

Jarðarberja- og jógúrtmús með dökkum súkkulaðitoppi ásamt skyr-ís, möndlu-karamelluköku, þeyttum sýrðum rjóma, jarðarberjum og jarðarberjasósu.

Í kokkalandsliðinu eru: Hafliði Halldórsson framkvæmdastjóri liðsins, Þráinn Freyr Vigfússon fyrirliði Lava Bláa lóninu, Viktor Örn Andrésson liðsstjóri Lava Bláa lóninu, Fannar Vernharðsson VOX, Bjarni Siguróli Jakobsson Slippbarnum, Ylfa Helgadóttir Kopar, Hafsteinn Ólafsson Apótekinu, Axel Clausen Fiskmarkaðnum, Garðar Kári Garðarsson Strikinu, Daníel Cochran Kolabrautinni, Ari Þór Gunnarsson Fiskfélaginu, Hrafnkell Sigríðarson Bunk Bar og María Shramko sykurskreytingarmeistari.

Hægt er að fylgjast með kokkalandsliðinu á vefsíðu liðsins www.kokkalandslidid.is og samfélagsmiðlunum Facebook, Instagram @icelandicculinaryteam og Twitter @kokkalandslidid.

Kokkalandsliðið.
Kokkalandsliðið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert