Jarðskjálfti sem mældist 5,4 stig varð í Bárðarbungu kl. 9.04 í morgun. Skjálftinn varð í norðanverði öskjunni og hann fannst m.a. á Akureyri.
Samkvæmt upplýsingum Veðurstofu Íslands hafa 50 skjálftar orðið í Bárðarbunguöskjunni síðan í gær. Sjö þeirra voru að 4 stig eða meira að stærð. Tólf voru 3 stig eða meira.