Verslunin Álfheimar hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað Asian Choice Seafood Mix vegna vanmerktra ofnæmis- og óþolsvalda (egg, sojaprótein, glúten).
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Asian Choice.
Vöruheiti: Seafood Mix.
Lotunúmer: 20160224-Maxport-2466.
Nettómagn: 1 kg.
Best fyrir: 24.02.2016.
Geymsluskilyrði: Frystivara.
Framleiðandi: Asian Choice.
Framleiðsluland: Kína.
Dreifing: Verslunin Álfheimar.
Tekið skal fram að varan er skaðlaus þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir framangreindum ofnæmis- og óþolsvöldum. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.
Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir eggjum, sojapróteini eða glúteni, er bent á að skila henni í viðkomandi verslun.