Nýir markaðir fyrir íslenska flugrekendur

AFP

Samninganefnd Íslands gerði átta nýja loftferðasamninga á ráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar um loftferðasamninga sem var haldin á Indónesíu.  Fjöldi samninga sem Ísland hefur gert við önnur ríki nálgast nú 90.

Fram kemur í tilkynningu á vef innanríkisráðuneytisins, að verulegur árangur hafi náðst í opnun nýrra markaða fyrir íslenska flugrekendur á ráðstefnunni. Var markmið hennar að skapa aðildarríkjum stofnunarinnar vettvang til viðræðna um gerð og framkvæmd tvíhliða loftferðasamninga. Alls sóttu 78 ríki ráðstefnuna og héldu samtals 546 tvíhliða fundi.

Nýju samningarnir sem Ísland hefur gert eru við Armeníu, Búrúndí, Eþíópíu, Guyana, Máritíus, Nígeríu, Srí Lanka og Tsjad. Jafnframt var samið um breytingu á samningi við Egyptaland og um inntak og ramma áframhaldandi viðræðna við Ekvador, Nepal og Vestur-Kongó.

Auk þess fundaði sendinefnd Íslands um framkvæmd gildandi samninga með fulltrúum Kanada, Rússlands, Tyrklands og Tælands en stefnt er að gerð nýs samnings við síðastnefnda ríkið. Þá funduðu Ísland og Noregur sameiginlega með Marokkó um aðild að loftferðasamningi Marokkó við Evrópusambandið, að því er segir í tilkynningu.

„Stöðugt vaxandi umsvif íslenskra flugrekenda hafa kallað á aukna áherslu á gerð tvíhliða loftferðasamninga. Misjafnt er um hversu víðtæk réttindi tekst að semja í hverju tilviki en auk gagnkvæmra heimilda til farþega- og farmflugs milli samningsríkja tekst oftast að semja um flug til og frá þriðju ríkjum og viðkomandi samningsríki. Fjöldi samninga sem Ísland hefur gert við önnur ríki nálgast nú 90,“ segir innanríkisráðuneytið.

Íslensku sendinefndina skipuðu Kristján Andri Stefánsson sendiherra, sem jafnframt var formaður, Gunnar Örn Indriðason lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu og Kristín Helga Markúsdóttir, deildarstjóri lögfræðideildar Samgöngustofu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert