Óbreytt staða í mannslátsmáli

Lík konunnar fannst í íbúð við Stelkshóla í Breiðholti.
Lík konunnar fannst í íbúð við Stelkshóla í Breiðholti. mbl.is/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu bíður enn lokaniðurstöðu krufningar og geðrannsóknar í tengslum við rannsókn á láti konu á þrítugsaldri í Stelkshólum í lok september. Að öðru leyti er rannsókn málsins lokið. Þegar gögnin berast verður málið sent ríkissaksóknara til áframhaldandi meðferðar.

Eiginmaður konunnar, sem er 29 ára gam­all, sætir ör­ygg­is­gæslu á rétt­ar­geðdeild Land­spít­al­ans á Kleppi og verður þar alla vega fram á næstkomandi fimmtudag. Allar líkur eru á því að farið verði fram á framlengingu vistar hans þar.

Hann var hand­tek­inn í lok sept­em­ber sl. og var hann í upp­hafi úr­sk­urðaður til að sæta gæslu­v­arðhaldi á Litla-Hrauni til 17. októ­ber á grund­velli rann­sókn­ar hags­muna. Fyrsta hálfa mánuðinn var hann í ein­angr­un í fang­els­inu. Þann 17. októ­ber var gæslu­v­arðhaldið yfir hon­um fram­lengt til 14. nóv­em­ber.

Maður­inn, sem grunaður er um að hafa þrengt að önd­un­ar­vegi konu sinn­ar þannig að bani hlaust af, hef­ur glímt við and­leg veik­indi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert