Sagði sveppina ekki hafa virkað

Ekki fylgir sögunni um hvernig sveppi var að ræða.
Ekki fylgir sögunni um hvernig sveppi var að ræða. mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á Suðurnesjum fann töluvert af sveppum við húsleit sem hún framkvæmdi í íbúðarhúsnæði í umdæminu í nýverið. Leyndust sveppirnir inni í fataskáp í svefnherbergi húsráðanda.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu, að maðurinn hafi viðurkennt að eiga sveppina og sagðist hafa ætlað að selja þá til Danmerkur.

Þeir hefðu hins vegar ekkert virkað á sig þannig að hann hefði tekið ákvörðun um að að henda þeim. Lagt var hald á sveppina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert