Tekinn með 24 kókaínpakkningar

Úr safni.
Úr safni. mbl.is/Júlíus

Pólskur ríkisborgari sætir nú gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla 24 pakkningum af kókaíni innvortis til landsins. Maðurinn, sem er á fertugsaldri var að koma frá London þegar tollverðir stöðvuðu hann í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna gruns um að hann væri með fíkniefni innvortis.

Lögreglan á Suðurnesjum færði hann á lögreglustöð þar sem hann skilaði af sér pakkningunum 24, sem innihéldu 120 grömm af kókaíni.

Maðurinn sætir gæsluvarðhaldi til næstkomandi föstudags, að því er fram kemur í tilkynningu en þar segir ennfremur að rannsókn málsins sé á lokastigi.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann hringja nafnlaust til koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert