Tíu prósent fækkun bókatitla

Bækur.
Bækur. mbl.is/Golli

Heildarfjöldi prentaðra bókatitla sem nefndir eru í Bókatíðindunum í ár er 638 en var 704 árið 2013. Þetta þýðir að titlum fækkar um tíu prósent á milli ára. Fjöldi titla prentaðir hér á landi eru 377, fækkar um 64 frá fyrra ári en sem hlutfall af heild dregst það lítillega saman milli ára 59,1% í ár en árið 2013 62,6%

Bókasamband Íslands gerði könnun á prentstað íslenskra bóka í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2014. Skoðað var hlutfall prentunar innanlands og erlendis eftir flokkum. Fram kemur að stór hluti barnabóka er prentaður erlendis m.a. vegna þess að samprent er algengt í útgáfu barnabóka.

  • Fræðibækur, bækur almenns efnis og listir eru 172; 113 (66%) eru prentaðar á hér á landi og 59 (34%) erlendis.
  • Skáldverk, íslensk og þýdd, eru 170; 148 (87%) prentuð hér á landi og 22 (13%) erlendis.
  • Saga, ættfræði, ævisögur, handbækur, matur og drykkur eru 107; 51 (48%) prentaðar hérlendis og 56 (52%) erlendis.
  • Barnabækur, íslenskar og þýddar, eru 189; 65 (34%) prentaðar hér á landi og 124 (66%) erlendis.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert