Varað við ísingu og hálku

mbl.is/Ómar

Veður fer heldur kólnandi og á láglendi getur myndast ísing og hálka ýmist vegna krapaélja eða þegar frystir við jörð. Þetta á einkum við um vestan- og suðvestanvert landið að sögn Vegagerðarinnar. Einnig norðan- og norðaustanlands, sérstaklega á fjallvegunum.

Hálkublettir eru nokkuð víða á norðanverðu landinu en hálka á Fljótsheiði. Á Vestfjörðum er þæfingsfærð og skafrenningur á Hrafnseyrarheiði en krap og snjóþekja á  Dynjandisheiði, Trostansfirði og Kleifaheiði. Hálka er á Steingrímsfjarðarheiði, Hálfdán og Mikladal.
Hálka er á Fjarðarheiði fyrir austan, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert