Harður árekstur á Suðurlandsvegi

mbl.is/Hjörtur

Harður árekstur varð á Suðurlandsvegi við Hellisheiðarvirkjun rétt eftir hádegi í dag. Þrír bílar skullu saman og voru þrír fluttir slasaðir á sjúkrahús í Reykjavík. Sjö manns voru í bílunum sem lentu í árekstrinum.

Samkvæmt upplýsingum slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru tveir sjúkrabílar sendir á vettvang frá Reykjavík en einnig komu sjúkrabílar frá Selfossi á staðinn.

Ekki er talið að fólkið hafi slasast mjög alvarlega.

Hálka og éljagangur er á Hellisheiði og krapi á veginum, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert