Ísing á götum

Ísing er víða á götum á höfuðborgarsvæðinu og því ráðlagt fyrir þá sem eru snemma á ferðinni að fara varlega. Eins gæti verið hált á göngu- og hjólreiðastígum á höfuðborgarsvæðinu í morgunsárið.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum er aftur á móti engin hálka á Reykjanesbrautinni né heldur í Reykjanesbæ.

Samkvæmt veðurspánni fyrir næsta sólarhring verður sunnan 8-13 m/s og skúrir eða él, en þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 1 til 6 stig. Hægari og úrkomuminna seinnipartinn og frystir allvíða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert