Kokkarnir keppa í kalda borðinu

Kokkalandsliðið við kalda borðið.
Kokkalandsliðið við kalda borðið.

Keppnin í kalda borðinu er hafin hjá íslenska kokkalandsliðinu í Lúxemborg. Liðið hefur síðustu tvo sólarhringa verið að undirbúa alla réttina sem nú hefur verið stillt upp í keppnishöllinni í Lúxemborg.

Á borðinu eru yfir 30 réttir ásamt sykurskreytingarverki. Í keppninni eru gerðar miklar kröfur um fjölbreytt og fagleg vinnubrögð, útlit og hráefnisnotkun þar sem hvert smáatriði skiptir máli. Borðbúnaðurinn er einnig mikilvægur en hann er unninn úr rekaviði, keramiki, postulíni, silfri og gulli.

Kokkalandsliðið leggur áherslu á að nota íslenskt hráefni í réttina sína. Á sýningarborðinu eru þrír forréttir, fjölbreyttir veisluréttaplattar, fimm rétta veislumatseðill, grænmetismatseðill, fingrafæði og margvíslegir eftirréttir og súkkulaði. Liðið hóf að undirbúa uppskriftir að réttunum fyrir 18 mánuðum. Innblásturinn er sóttur í Ísland og það sem land elda og íss gefur okkur, þar á meðal hreina náttúru, rekaviðinn úr sjónum, hraunið, hrafntinnuna og stuðlabergið.

Kokkalandsliðið keppir í tveimur greinum í heimsmeistaramótinu í matreiðslu, Culinary World Cup, sem fram fer í Lúxemborg. Í fyrri keppnisgreininni fékk kokkalandsliðið gullverðlaun fyrir heita rétti. Úrslit í keppninni allri ráðast á fimmtudaginn þegar öll 56 löndin hafa keppt í ýmsum greinum.

Í kokkalandsliðinu eru: Hafliði Halldórsson framkvæmdastjóri liðsins, Þráinn Freyr Vigfússon fyrirliði Lava Bláa lóninu, Viktor Örn Andrésson liðsstjóri Lava Bláa lóninu, Fannar Vernharðsson VOX, Bjarni Siguróli Jakobsson Slippbarnum, Ylfa Helgadóttir Kopar, Hafsteinn Ólafsson Apótekinu, Axel Clausen Fiskmarkaðnum, Garðar Kári Garðarsson Strikinu, Daníel Cochran Kolabrautinni, Ari Þór Gunnarsson Fiskfélaginu, Hrafnkell Sigríðarson Bunk Bar og María Shramko sykurskreytingarmeistari.

Hægt er að fylgjast með kokkalandsliðinu á vefsíðu liðsins www.kokkalandslidid.is og samfélagsmiðlunum Facebook, Instagram @icelandicculinaryteam og Twitter @kokkalandslidid.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert