Segir sátt um samninginn

Rúnar Vilhjálmsson.
Rúnar Vilhjálmsson. Ljósmynd/ Ásdís Ásgeirsdóttir

Full­trú­ar Fé­lags pró­fess­ora við ríkisháskóla skrifuðu und­ir kjara­samn­ing í húsa­kynn­um Rík­is­sátta­semj­ara skömmu í gærkvöldi. Í dag kynntu fulltrúarnir samninginn fyrir stjórn félagsins og segir Rúnar Vilhjálmsson, formaður honum hafa verið vel tekið.

„Það ríkti almenn sátt um þennan samning í stjórninni. Ég á ekki von á öðru en að hann verði samþykktur og við munum mæla með samþykki hans þegar þar að kemur,“ segir Rúnar.

Samningurinn verður kynntur fyrir félagsmönnum á föstudaginn og í framhaldi af því verður boðað til rafrænnar atkvæðagreiðslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert