Eldur í blaðagámi

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu slökkti eld í blaðagámi við Víkurskóla um fjögur leytið í nótt. Ekki urðu neinar teljandi skemmdir.

Eins var slökkviliðið kallað út að Dvergshöfða í nótt en tilkynnt hafði verið um reyk í iðnaðarhúsnæði. Í ljós kom að reykurinn kom frá olíublautri tusku sem hafði verið hent í ruslafötu og myndaðist bæði reykur og lykt frá tuskunni. Slökkviliðsmenn sóttu ruslafötuna inn í húsnæðið og reykræstu en ekki var um neinar skemmdir að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert