Fjölga félagslegum íbúðum

Reykjavík
Reykjavík mbl.is/SBS

Borgarráð hefur samþykkt tillögu borgarstjóra um að heimila Félagsbústöðum að fjölga félagslegum leiguíbúðum borgarinnar um 500 á næstu fimm árum, árin 2015 – 2019. Fjárfesting Félagsbústaða mun nema um 13,5 milljörðum króna.

Íbúðunum verður fjölgað með byggingu eða kaupum. Gert er ráð fyrir að fjöldi  almennra félagslegra leiguíbúða í eigu félagsins verði um 1.815 í árslok 2014. Eignasafnið talið í fjölda íbúða mun stækka um 28% til ársloka 2019.

Gert er ráð fyrir því að Reykjavíkurborg og ríki leggi fram um 30% eigið fé, í samræmi við hugmyndir um framtíðarskipan húsnæðismála. Þegar hefur verið óskað eftir formlegum viðræðum við félags- og húsnæðismálaráðherra um aðkomu og stuðning ríkisins við verkefnið.

Gert er ráð fyrir að Félagsbústaðir kaupi eða byggi 550 íbúðir. Fjárfestingin verður fjármögnuð með 70% lántöku á almennum, verðtryggðum markaðskjörum til 50 ára. Á móti verði seldar um 50 íbúðir. Í umsögn og útreikningum fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar er í varúðarskyni miðað við 3,8% verðtryggða vexti. Að mati fjármálaskrifstofu er eðlilegt er að stefna á að tryggja betri kjör lána til fjárfestingarinnar.

Á sama tímabili er gert ráð fyrir að seldar verði 50 minna veðsettar íbúðir úr eignasafni félagsins. Samkvæmt áætluninni verða íbúðir keyptar eða byggðar   fyrir 13,5 milljarða á verðlagi hvers árs en á móti verði seldar íbúðir fyrir um 1,2 milljarða. Nettó fjárfesting í íbúðum verður þannig um 12,3 milljarðar eða tæplega 2,5 milljarðar að jafnaði á ári.

Stofnfjárframlag Reykjavíkurborgar er áætlað rúmlega 1,23 milljarðar á tímabilinu samkvæmt áætlun Félagsbústaða sem er um 200 mkr meira á ársgrundvelli en framlög borgarinnar hafa verið að jafnaði frá stofnun félagsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert