Gasmælar virkjaðir á Seltjarnarnesi

Baldur Pálsson fræðslustjóri Seltjarnarness les af einum gasmælanna sem verið …
Baldur Pálsson fræðslustjóri Seltjarnarness les af einum gasmælanna sem verið er að taka í notkun þessa dagana.

Á undanförnum vikum hafa stjórnendur og fulltrúar í bæjarstjórn Seltjarnarness sótt fundi hjá Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins þar sem farið hefur verið yfir viðbragðsáætlanir vegna jarðhræringa við Bárðarbungu, eldgossins í Holuhrauni og gasdreifingar. 

Í fréttatilkynningu frá Seltjarnarnesbæ segir að í kjölfar fundanna afréð Seltjarnarnesbær að fjárfesta í þremur handmælum sem komið verður fyrir við grunnskólann, leikskólann og íþróttamiðstöðina. Þegar veðurvaktin hjá Veðurstofu Íslands spáir gasdreifingu um höfuðborgarsvæðið verður lesið af mælunum með jöfnu millibili og niðurstöður færðar inn á heimasíðu Umhverfisstofnunar, en hægt er að komast inn á þá síðu frá heimasíðunni seltjarnarnes.is. Síðan þarf að velja flipann Handmælar á síðu Umhverfisstofnunar.

Það er von bæjarins að með þessu móti getir íbúar á Seltjarnarnesi áttað sig betur á loftgæðum í sinni heimabyggð en Umhverfisstofnun hefur gefið út töflu sem tekur á áhrifum gasmengunar á heilsufar fólks sem finna má uts.is. Samkvæmt henni er börnum og viðkvæmum ráðlagt að forðast áreynslu utandyra þegar magn brennisteinstvíildis (SO2) mælist yfir 600 míkrógrömmum á rúmmetra í andrúmsloftinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert