Finnskir ferðamenn tjölduðu í æfingaskýli á golfvelli

Tjald. Mynd úr safni.
Tjald. Mynd úr safni. Einar Jónsson

„Sumir dagar eru erfiðari en aðrir eins og við vitum flest. Þannig fékk lögreglan tilkynningu fyrir skemmstu á þann veg að fólk væri búið að hreiðra um sig í æfingaskýli á golfvelli einum í borginni.“

Þetta segir lögreglan á höfuðborgarsvæðin á Facebooksíðu sinni.

„Þar reyndust þreyttir finnskir ferðamenn hafa komið sér fyrir, en ástæðan hafi verið sú að þeir vildu síðar bleyta tjaldið sem var meðferðis en ætlunin væri að fara út á land daginn eftir og þá væri betra að vera með þurrt tjald.

Af skiljanlegum ástæðum var frændum okkar Finnum bent á heppilegri náttstaði og tóku þeir ábendingunum vel.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert