Miðasala á Iceland Airwaves hefst í dag

Flaming Lips kom fram á Iceland Airwaves á dögunum.
Flaming Lips kom fram á Iceland Airwaves á dögunum. Eggert Jóhannesson

Miðasala á Iceland Airwaves 2015 hefst á hádegi í dag, mánudaginn 1. desember á heimasíðu hátíðarinnar. Sérstakt forsöluverð verður í boði fyrir þá fyrstu sem kaupa. Í ár var uppselt á hátíðina og hefur fjöldi erlendra gesta sem heimsóttu Reykjavík á Iceland Airwaves aldrei verið meiri. 

Hátíðin verður haldin dagana 4. til 8. nóvember árið 2015 og er undirbúningur þegar hafinn og verða fyrstu listamennirnir kynntir til leiks snemma á næsta ári, segir í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert