Úrskurðaður látinn í Keflavík

mbl.is/Sigurður Bogi

Farþegi sem veiktist um borð í flugvél sem var á leið frá Brussel til Washington var úrskurðaður látinn þegar vélinni var lent á Keflavíkurflugvelli vegna veikindanna síðastliðinn föstudag. Endurlífgun var hafin meðan á fluginu stóð en hún bar ekki árangur.

Í fyrradag var svo annarri vél lent á Keflavíkurflugvelli, einnig vegna veikinda farþega. Sú vél var á leiðinni frá St. Pétursborg til Punta Cana í Dóminíska lýðveldinu. Farþeginn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og svo þaðan á Landspítala til aðhlynningar, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert