Yfir 50 ættleiðingar í fyrra

Alls voru fjögur börn ættleidd frá Kína til Íslands á …
Alls voru fjögur börn ættleidd frá Kína til Íslands á síðasta ári. AFP

Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru 52 einstaklingar ættleiddir á Íslandi árið 2013. Þetta er nokkuð fleiri en árið 2012, en þá voru ættleiðingar 34. Árið 2013 voru stjúpættleiðingar 31 en frumættleiðingar 21.


Færri frumættleiðingar frá útlöndum

Frumættleiðingar frá útlöndum voru 10 árið 2013, en hafa verið milli 16 og 18 talsins síðustu fjögur ár. Undanfarin ár hafa flest ættleidd börn verið frá Kína og árið 2013 eru einnig flestar ættleiðingar þaðan, eða fjögur, en einnig voru ættleidd fjögur börn frá Kólumbíu. Frá því að frumættleiðingar frá Kína hófust árið 2002 hafa þær þó ekki verið færri á einu ári.

Mikil fjölgun stjúpættleiðinga milli ára


Stjúpættleiðingar árið 2013 voru 31. Það er fjölgun frá árinu 2012, en þá voru þær óvenjulega fáar eða 17. Í öllum tilvikum var stjúpfaðir kjörforeldri, en það hefur jafnan verið algengast. Frumættleiðingar innanland voru 11 árið 2013, og hafa þær einungis einu sinni verið fleiri á einu ári frá 1990, það var árið 2006 þegar þær voru 19.

Með hugtakinu stjúpættleiðing er átt við ættleiðingu á barni (eða kjörbarni) maka umsækjanda. Með hugtakinu frumættleiðing er átt við ættleiðingu á barni sem ekki er barn maka umsækjanda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert