Endurbætur á Stuðlum

Ný og endurbætt lokuð deild var tekin í notkun á Stuðlum í dag. Búið er að fjölga herbergjum um eitt þannig að nú eru rými fyrir 6 börn en á áður hýsti hún 5 börn og þá er búið að kynjaskipta deildinni. Einnig tekið í notkun sérstakt neyðarrými sem hefur ekki verið til staðar hingað til.

mbl.is var á Stuðlum í dag þar sem rætt var við Þórarinn Viðar Hjaltason, forstöðumann, um breytingarnar.

Nú er í fyrsta skipti hægt að vista drengi og stúlkur aðskildum rýmum. Auk þessa hefur verið útbúið sérstakt neyðarrými sem ætlað er í móttöku barna í slæmu ásigkomulagi þannig að þau þurfi ekki að vera innan um önnur börn á meðan þau eru að jafna sig. Auk breytinganna á lokaðri deild Stuðla var farið í endurbætur á meðferðardeildinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert